eilíft korter

By Elín Hall

On heyrist í mér?

Released on November 3, 2023

Thumbnail

[Erindi 1]

Allt sem að ég vildi frá þér heyra

Var ég hefði aldrei geta gefið meira

Krotuð orð í stílabók

Krókaleiðir sem ég tók leitandi af þér

Fyrir eitt annað korter

Þú spyrð en ég hef þér lítið að segja

Samdi plötu um þig svo hvað viltu heyra?

Að kaffið í Kringlunni

Og kveðjur í Mjóddinni

Batt mitt auma hjarta þér

Þessi eilífu korter


[Viðlag]

Það var þér líkt að segja

Að öll blóm myndu deyja

Svo að tína þau væri tilgangslaust


[Erindi 2]

Erfiðast var hvað þú kaust að þegja

Svo ég árum eyddi í að finna orð að segja

Eins og þau gætu skolað mig

Grætt og endurlífgað mig

Lag fyrir lag

Ef ekki í gær kannski í dag


[Viðlag]

Það var þér líkt að segja

Að öll blóm myndu deyja

Svo að tína þau væri tilgangslaust


[Erindi 3]

Fyrir bréfin sem ég batt með bandi

Fyrir Tinna og Lísu í Undralandi

Gerðu það fyrir vin

Og efnafræðiskrópin

Leyfðu mér að heyra

Að ég hefði aldrei geta gefið meira