Elín Hall
AKA: Elín Sif Hall, Elin Sif, Elín Sif Halldórsdóttir
Elín Hall er íslensk tónlistarkona og lagahöfundur. Hún hefur gefið frá sér þrjár plötur, “Með öðrum orðum”, “heyrist í mér?” og “fyllt í eyðurnar”. Elín hefur hlotið fjölda viðurkenninga, m.a. fjórar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna og verðlaun fyrir plötu ársins 2024 hjá Grapevine fyrir “heyrist í mér?”. Elín hefur fjórum sinnum setið í fyrsta sæti vinsældarlista Rásar 2 og tvisvar hefur hún gefið út lög í samfloti við kvikmyndaverk (“rauðir draumar” samdi hún sem þemalag kvikmyndarinnar “Kuldi” en síðar gerði hún ábreiðu af laginu “hafið er svart” fyrir aðra seríu “Svörtu Sanda”).