Released on July 23, 2017

Thumbnail

Ævaforn, eilífur

Á botni hylsins hírist

Í örvæntingu steypist í gin glötunar

Bundinn í hlekki eilífrar endurfæðingar

Ormstunga

Snákur skríður

Um sporbaug

Án afláts

Óravíddir rekur

Heltekinn af vilja

Hungrið sverfir

Hali höfði fylgir

Hátt uppi sveimar

Ormstunga

Hreistur sindrar

Fast um sig hlykkjast

Föl naðra

Sporð sinn nagar

Ormstunga

Gnístan skoltsins glymur

Í blindri heift

Botnlaust tómið kallar

Gin drekans opnast

Heiminum að granda

Stjörnur sortna

Strengir rofna

Hryggur klofnar

Eilífðin afmyndast

Í himingeimsins sæ

Endurspeglast skin dauðra stjarna

Bjagað bergmál látinna heima

Ómar um tóma sali

Afmyndað hræ himinhvolfanna

Gapir hreyfingarlaust

Af eitri ertu kominn

Að eitri muntu aftur verða

Upp risinn úr köldum undirheimsins brunni

Afskræmdur sekkur í hafrótsins djúp

Ævaforn, eilífur

Á botni hylsins hírist

Í örvæntingu steypist í gin glötunar

Bundinn í hlekki eilífrar endurfæðingar

Afmyndað hræ himinhvolfanna

Gapir hreyfingarlaust

Botnlaust tómið kallar