Released on October 10, 2001

Thumbnail

[Vísa 1]

Þú hlærð heldurðu að þetta sé grín?

Með epli í kjaftinum verður borinn fram eins og svín

Þetta er ekki gert í gamni

Borða MC-a eins og nammi

Helst til súrir þá þarf að sykra

Ef það ekki dugar þá bara pipra

Og skvetta smá hvítlauksolíu

Rokka eins og gaurarnir í Stolíu

Forðum daga varð til þessi baga

En engin saga

Í þetta sinn er það minn eða þinn nemi sem liggur á lausu

Kem í heimsókn eins og hraun á laun

Ég byggi minn draum um hipphopp Ísland

Þú þekkir þann mann, Sesar A að sjálfsögðu, eins og Egils appelsín

Í kvöld kemur kærastan þín til mín

Ríman í eyrum hvín eins og Queen

We will, we will rock you

Læt mér ekki nægja að segja bara fuck you

Styð það með rökum, sýp á Cocio eins og Mad Comix

Buffa þig verbalt eins og Asterix

Hamrar Rómverja

Þinn málstað еr ekki hægt að verja

Frekar еn Ísraelar og þjóðarmorð þeirra í Palestínu

Ef þú bara skoðar heiminn okkar pínu

Og hættir augnablik að spá bara í þínu litla rassgati

Að með nógu miklum peningum færðu allt á fati

'Þarft ekki að vita neitt nema upphæðina

Öllum heimsins peningum er ekki hægt að skipta fyrir þetta ódauðlega sem ég er að gera

Spurning um að vera til

Gera á sínum skoðunum skil

Gerðist ekki við fyrstu hlustun en þangað til

Segi þér yfir þennan feita takt hér, ég hugsa þess vegna er ég til


[Viðlag]

Minn tími er kominn

Sesar A býður þig velkominn

Inn í hipphoppheiminn minn

Inn því við hugsum ekki bara minn eða þinn

Minn tími er kominn

Sesar A býður þig velkominn

Inn í hipphoppheiminn minn

Inn því við hugsum ekki bara minn eða þinn

Minn tími er kominn

Sesar A býður þig velkominn

Inn í hipphoppheiminn minn

Inn því við hugsum ekki bara minn eða þinn


[Vísa 2]

Þetta er stormurinn á eftir logninu

Ég veit að þú ert löngu þreyttur á öllu hinu

Kjaftæðinu sem ég hleypti á undan mér

Bara til þess að sýna þér hve miklu ég breytti hér

Þegar ég stíg á svið

Og sný veröld þinni við

Og kem með hið vammlausa flæði

Endalaust ég bræði

Allar hindranir

Sem settar hafa verið við mitt hlið

Úr snjókörlum í vatn sem gufar upp orðið að því lofti sem það alltaf var

Taktur svo fastur að hann skilur eftir mar

Á þínum heyrnarhimnum skil eftir far

Rafeindasmásjá les Sesar A húðflúr

Dagrétti þig stöðugt svo óþarft er úr ljúfu færi, öllum fótunum úr

Með rödd minni einni saman

Fátæklegt verður orðið gaman

Gleymir síðan algjörlega stund og stað

Er með verkefni handa hamar, steðja og ístað

Ertu viss um að þú ráðir við það

Bæði að nema hljóð

Mitt blóð og hugsanaflóð

Og ná því að ég er að segja ekki „hvort“ heldur „hvenær“

Höfuð, herðar, hné og tær

Sannaðu til þó ég verði orðinn elliær

Verð ég engu að síður vel um það fær

Að jarða hægri og vinstri rassa á MC-um

Og á sama tíma í hléum

Læt þig finna, meðtaka, upplifa þegar ég samtvinna skoðunum og tilfinningum í þessu feitasta formi

Sem er í mínum hugstormi


[Viðlag]

Minn tími er kominn

Sesar A býður þig velkominn

Inn í hipphoppheiminn minn

Inn því við hugsum ekki bara minn eða þinn

Minn tími er kominn

Sesar A býður þig velkominn

Inn í hipphoppheiminn minn

Inn því við hugsum ekki bara minn eða þinn

Minn tími er kominn

Sesar A býður þig velkominn

Inn í hipphoppheiminn minn

Inn því við hugsum ekki bara minn eða þinn


[Outro]

DJ Magic, hvað hefur þú til málanna að leggja?