[Viðlag]
Ha, ha, ha, ha, ha, ha, ha (Sesar A)
Hvað byrjar á S og endar á A (Sesar A)
Hver presenterar aðeins það feitasta (Sesar A)
Viltu reyna hvað? En ekki gleyma
Hvað byrjar á S og endar á A
[Vísa 1]
Það byrjar á mmh- ha
Svo kemur nokkuð sem byrjar á S og endar á A
Þú spyrð kannski: „Hvað er það
Sem byrjar á S og endar á A?“
Það er ekkert annað en Sesar A
Ha, ha, ha, ha, ha, ha, ha
Á bágt með annað en að hlæja að
Keppinautum sem ruglast í sínu eigin rími
Því miður gefst mér ekki tími
Til að sýna, kenna eða leiðbeina þessum, honum, henni eða þér
Hvað það er
Sem gildir hér í rímnasmíð
Hef nóg mеð minn eigin hellafrumulýð
Sem slеitulaust stundar smíð af hugmyndum sem aldrei hverfa frekar en ryk
Ég veit ekki með þig
En það fer eftir skapi og hugarástandi mínu
Hvort þú verður munnlega flengdur mikið eða pínu
Ég daðra við orðin endalaust eins og Andrés við Sínu
Ég bið þig um lítið, eiginlega ekki neitt
Nema það eitt
Bentu á þann sem þér sem þér þykir bestur
Sesar A er ekki eins og maður telst flestur
Á hipphoppheimili auðfúsugestur
Held þar fastar messur eins og prestur
Sestu niður og hlýddu á minn fyrirlestur
Þú verður ekki lengi að sjá hver er bestur
Nafnið fast eins og spor á tunglinu
Fer hvergi, er nákvæmlega hér
[Viðlag]
Ha, ha, ha, ha, ha, ha, ha (Sesar A)
Hvað byrjar á S og endar á A (Sesar A)
Hver presenterar aðeins það feitasta (Sesar A)
Viltu reyna hvað? En ekki gleyma
Hvað byrjar á S og endar á A
[Vísa 2]
Velkominn í mitt ríki
Kominn inn fyrir síki
Kominn inn í Rómarborg
Skorar á mig við torg
Uppselt í hringleikahúsið
Hér hjálpar þér ekki einu sinni búsið
Þegar þú bíður lægri hlut fá ljónin kvöldverð
Ég er bara þannig manngerð
Hannaður til að endast eins og stjörnukerfið
Ef þú mætir með stæla í 101 hverfið
Verður gengið þitt að vera með draslið sitt á hreinu
Ekki ruglast í neinu, annars geri ég ykkur úthverfa og skil ykkur í kleinu
Hlæ að ykkur týndum og ráðþrota í keisaradæminu
Nafnið fer um landið eins og eldur í sininu
Og allt heimsins brunalið fær ekki slökkt í mér
Búinn að leyfa flestum að spreyta sér hér
Svo ég geti komið fram á svið og tekið ykkur í tvennt
Hætti ekki fyrr en ég hef hverju mannsbarni kennt
Að segja og stafa nafnið mitt rétt
[Viðlag]
Ha, ha, ha, ha, ha, ha, ha (Sesar A)
Hvað byrjar á S og endar á A (Sesar A)
Hver presenterar aðeins það feitasta (Sesar A)
Viltu reyna hvað? En ekki gleyma
Hvað byrjar á S og endar á A
S-e-s-a-r A stafast það
Viltu vita hvað Sesar A stendur fyrir
Þarftu ekki annað en að hlusta
[Vísa 3]
Fyrst S svo E svo S svo A og eitt R
Síðan kemur þú veist hvað
Þarf ekki að nefna það
Sesar Africanus er nafnið sem ég fékk eftir fæðingu
Þú spyrð kannski um merkingu
Ég skal snúa því yfir á almenna þekkingu
Sesar er nafn á blóði, svita og tárum móður minnar
Níu mánuðum áður auk Skabba í Norður-Afríku, það er Túnis
Eru þú og skilaboðin að fara á mis?
Þetta verður Sesar Africanus, búinn til í Afríku
Nafnið gefið dreng gæddum hæfileikum slíkum
Engum líkur getur lokað hvaða klíkum sem er
En einmitt hér
Er það orðið sem er vopnið flugbeitt eins og eggin
Sem opnar skemmda kartöflusekkinn
Sem þú kallar rímforði
Goðin okkar frá því forði
Að hlusta á þig í orði
Ætli ég verði ekki stöðva þetta eins og hitt
Innantómt taut sem þú kallar rappið þitt
Hyldýpi í
Þegar ég rímnaver fer í
100 þúsund milljón heilafrumur slá saman taktinn minn
Syrgjandi þær sem fóru veginn
Langa í pzz- þoku
Hendi skinku úr minni samloku
Því ég borða ekki mömmu þína
Rímum fjölgar eins hrísgrjónum í Kína
Skilaðu allt í fína
Niður í Miðgarð
Hvað um merkinguna í tónlist varð
Spyr ég, snýst greinilega allt um dauða hluti
Sem ekki endast
En þegar þeir á sporðaug sendast
Þá verður tvennt eftir; orðið og nafnið, nafnið og orðið
Nafnið er Sesar A
Nú manst þú það
'Þarf ekki að segja það aftur eða hvað?
[Viðlag]
Ha, ha, ha, ha, ha, ha, ha (Sesar A)
Hvað byrjar á S og endar á A (Sesar A)
Hver presenterar aðeins það feitasta (Sesar A)
Viltu reyna hvað? En ekki gleyma
Hvað byrjar á S og endar á A
S-e-s-a-r A stafast Sesar A
Nú er ég búinn að segja merkinguna
Vonandi manstu það