[Viðlag]
Feitur skóþvengur, í hvaða skó sem er
Feitur skóþvengur, hvert sem ég fer
Feitur skóþvengur, ekki vanvirða hér
Því ef svo er þá trampar hann á þér
Feitur skóþvengur, í hvaða skó sem er
Feitur skóþvengur, hvert sem ég fer
Feitur skóþvengur, ekki vanvirða hér
Því ef svo er þá trampar hann á þér
[Vísa 1]
Trú mín staðfest, á sama stað og þessi ríma staðsett
Sjaldan eins feit og þétt, og engum blöðum um flett
Með 100 takta á mínútu
Sesar A tók við stjórn á þjóðarskútu
Áður en Dóri & Dabbi sigldu henni í strand
Sjáðu mig kasta línu í land
Reyndar til allra sem kunna gott að meta
Er еkki að setja mig á of stóran hest
Rokka bara það sem fólk flеst kann að meta best
Feitur skóþvengur passar ekki í lakkskó
Jafnvel þó að magnum Astró
Segi svo verði það að vera
Þá hef ég ekkert inn í ykkar stað að gera
Vantar augljóslega allt upp á í grunnþekkingu
Eða bara allt sem við kemur hipphoppkenningu
Einu sönnu götumenningu
Sem sameinað getur allt og alla
Þarf augljóslega meira um að fjalla
Mál til komið að kalla til þings
Riddara hins lokaða hrings
Herjað með hörku eins og veldið Ming
Þetta er þitt nýja faðirvor
Ef ekki þá vantar 101 hipphopp inn í þitt skor
Þetta er meira en þú sérð
Um ómunatíð ég verð, fulltrúi á það sem trúi
Brögð ekki í tafli, virðing er minn afli
Og peningur annar kafli
Sem ég eltist ekki við
En svo lengi sem ég stíg á svið
Og gef ykkur aðra hlið á málum
Spái ég ekki í fjármálum
Því aurinn skapar ekki listina
Né heldur verður þér vel til vina
Nema svo lengi sem aurinn endist
En minn feiti skóþvengur endist
Miklu lengur en hver annar treggáfaður viðskiptadrengur
Sama hvernig gengur, verður minn skóþvengur ávallt feitur
[Viðlag]
Feitur skóþvengur, í hvaða skó sem er
Feitur skóþvengur, hvert sem ég fer
Feitur skóþvengur, ekki vanvirða hér
Því ef svo er þá trampar hann á þér
Feitur skóþvengur, í hvaða skó sem er
Feitur skóþvengur, hvert sem ég fer
Feitur skóþvengur, ekki vanvirða hér
Því ef svo er þá trampar hann á þér
Feitur skóþvengur, í hvaða skó sem er
Feitur skóþvengur, hvert sem ég fer
Feitur skóþvengur, ekki vanvirða hér
Því ef svo er þá trampar hann á þér
[Vísa 2]
Maðurinn skapar fötin en skapa fötin manninn
Ef þú klæðist svona verður þá einfaldlega þannig
Tíska er afstætt hugtak
Eins og það er notað í dag
Fólk klæðist bara því sem allir hinir klæðast
Fáir þora að vera öðruvísi, á erfitt með að ekki að hæðast
Fjöldanum að
En hvað er með það að þú kaupir bara það
Sem auglýsingar segja þér að kaupa
Sömu aðilar sem ákveða hvenær hvað fer í og úr tísku
Ef þú það eltir máttu ekki hugsa um nísku
Fjöldinn þorir ekki annað en að hugsa eins og allir hinir
Dætur og synir, geta ekki verið vinir nema allir líti út eins og allir hinir
Gerðu svo vel og kauptu yfirlýsingu um óvirkan smekk
Merkjagalla sniðnir, svo þú líkist helst týndum hlekk
Sem ekki næga athygli í æsku fékk
Áttu erfitt með að skapa þinn eigin stíl
Situr bara og bíður eftir meðaljónslíf
Sæki þig í Volvoskutbíl
Þú getur ekki trúað hvað ég hef þurft að hlusta á
Varðandi víðar buxur og tónlistina sem ég hlýddi á
Og derhúfu sem var hausnum á þá
Það hætti þegar allir aðrir fóru að læra á þann stíl
Þá breytti ég til, en hélt sama lífstíl
Sagði eitt sinn að það væri erfitt að vera frumkvöðull og mikið djöfull er það rétt
Og hef á það hér bent, og ekki en fyrir mig enn hent
Að verða tískunnar fíkill
[Viðlag]
Feitur skóþvengur, í hvaða skó sem er
Feitur skóþvengur, hvert sem ég fer
Feitur skóþvengur, ekki vanvirða hér
Því ef svo er þá trampar hann á þér
Feitur skóþvengur, í hvaða skó sem er
Feitur skóþvengur, hvert sem ég fer
Feitur skóþvengur, ekki vanvirða hér
Því ef svo er þá trampar hann á þér