Released on October 10, 2001

Thumbnail

[Inngangur]

Stundum finnst þér allir hlutir í heimi hér vera allt of flóknir

En það þarf ekki að vera þannig því ef þú snýrð þér við

Og horfir á þá frá annarri hlið

Þá verður það einfalt eins og A, B, C

Sesar A og DJ Magic


[Vísa 1]

Sótti ljúfuna á Móses

En þú veist að Sess

Leikur sjaldan hollinnskollinn

Og það kemur þér í kollinn

Þegar þú vildir bara vera vinir

Gott og vel, ég get verið eins og hinir

En ekki í langan tíma

Finn mér aðra gellu sem í Sess tímir tíma

Þetta er einfalt eins og A, B, C

Hvimleitt eins og dýraverðir á KB

Gæti ekki verið meira sama

Þótt þið reynið að vera mér til ama

Það hefur ekki áhrif, ég segi að þessi dama

Fylgi mér á næsta stað og spáðu ekki í það

Þótt ég ljúfan fórum saman í freyðibað

Smá pzzz og allt fellur á sinn stað

Hvað, hvað, hvað er það eina sem þú getur sagt

Sett egóið þitt í Múlínex, með pomp og pragt

Er djammið sett í gang er þér ekki að færast of mikið í fang

Brátt brytjaður eins og þang í tannkrem

Sál mín í öllu sem ég sem

Ásamt sneriltrommu inn í haus þinn ég lem

Klæddur eins og til ég dyranna kem


[Viðlag]

Þetta er einfalt eins og A, B, C

Þannig séð enn þá fulltrúi fyrir V-Kóp

Sesar A er stafað með S en ekki C

Virðing handa Comdante Ché

Því þetta er einfalt eins og A, B, C

Þannig séð enn þá fulltrúi fyrir V-Kóp

Set ekki X við D

Frekar en að vera með lifrarbólgu B


[Vísa 2]

Ég mun gera takta eins og Quincy Jones

Þangað til vafasöm sambönd eins hjá Lalla Jóns

Jafn einfalt eins og hjá Sherlock Holmes

Reyndu og reyndu aftur

Í mínum rafhlöðum ógnarkraftur

Hætti ekki fyrr en ég dett niður dauður

Ávallt vel rauður, list mín er minn auður

Lifi ekki lengur bara miklu meira, ljáðu mér eyra

Ef hugmyndir væru bensín myndi ég endalaust keyra

Þessari sjálfrennireið sem er mín tilvera

Og hvað ætlarðu að vera þegar þú verður stór

Þú verður að hafa eitthvað til brunns að bera

Og hvað ætlarðu að gera

Þegar kökkurinn í hálsinum stækkar á meðan ég ræski mig

Og sendi slagrímu stílaða á þig

Ef ég fengi hjartaáfall myndi ég samt mæta gallharður á sviðið í fimm gíra spitthjólastól

Þú munt bíða lægri hlut fyrir þessu fatlafóli

Haldandi á skæðu tóli

Hætti ekki kem alltaf aftur eins og árstíðir

Mínar rímur gefa aula MC-um hrolli

Og þeirra þunnu rímur fæðast löngu fyrir tíma

Sem þeir frá mér reyndu að klippa og líma


[Viðlag]

Þetta er einfalt eins og A, B, C

Þannig séð enn þá fulltrúi fyrir V-Kóp

Sesar A er stafað með S en ekki C

Virðing handa Comdante Ché


[Vísa 3]

Ég skipti mér helst ekki af deilum annarra hér

Svo lengi sem þær beinast ekki að mér

En þú leggur mér orð í munn hver sagði hvað

Hvar og hvenær hipphopp eru þínar kýr og ær

En þér er nær að skrifa særindi í mínu nafni

Það liggur við að maður kafni „keep it real“-rímum

Sama ríman í mörgum útgáfum

Við eigum þennan miðil og margt mikilvægara sjáum

Til að koma orði á, misskipting, misrétti, ég og þú, himinn og jörð

Eru meðal annars í þeirri málefnahjörð

Sem ég legg á lóðið á móti „keep it real“

Varnarlið er hvað?

Lið til varnar þegar kjarnaoddur stefnir á Reykjanes

Íslenska þjóðin er í góðum bisness

Við að styðja sjálfskipaða lögreglu heims

Sem fremur sín mannréttindabrot í sjófréttum

Hvað um að við þriðja heimskuldum afléttum

Já-nei, best að halda þeim hluta heims niðri enn um sinn

Veittu óvininum kinnina og vertu óspar á ástina

Svo hún verði lítils virði eins og hjá kirkjunni og Jesú

Ég veit jafn vel og þú að hann Jesús

Var ekki síðhærður maður með blá augu og skegg

Líklega sólbrúnn með nett afró

Ég kem hvort eð er ekki öllu í þessa rímu og segi því nóg

Komið og tek með mér spóluna úr Bó


[Viðlag]

Þetta er einfalt eins og A, B, C

Þannig séð enn þá fulltrúi fyrir V-Kóp

Sesar A er stafað með S en ekki C

Virðing handa Comdante Ché

Því þetta er einfalt eins og A, B, C

Þannig séð enn þá fulltrúi fyrir V-Kóp

Set ekki X við D

Frekar en að vera með lifrarbólgu B


[Útgangur]

Einfalt eins og A, B, C

Einfalt eins og A, B, C

Einfalt eins og A, B, C

Einfalt eins og A, B, C

Einfalt eins og A, B, C

Einfalt eins og A, B, C