[Viðlag]
Hið íslenska bananalýðveldi
Valdaklíku sálina seldi
Siðlausir ríkisstjórnarmeðlimir
Sukkið borga landsins dætur og synir
Hið íslenska bananalýðveldi
Valdaklíku sálina seldi
Siðlausir ríkisstjórnarmeðlimir
Sukkið borga landsins dætur og synir
[Erindi 1 - Sesar A]
Staður þar sem fjölmiðlar sýna linkind
Og helspilltir pólitíkusar eru fyrirmynd
Sem segja aldrei af sér sama hvað dynur á
Fara kannski í frí þá, eða í feitt sendiráð
Ábending handa þér, Sjálfstæðisflokkur
Allt ykkar sukk og svínerí bitnar á okkur
Hinn íslenski hægri flokkur
Staðnað íhaldsvaldaapparat
Stefnumál bara plat
Stétt með stétt, hvað er það?
Seðlabankastjóri og ræstitæknar hlið við hlið
Eftir rökum er endalaust bið
Tala í hringi og rembast á þingi
Að halda status quo við
Hægristefnan er tímaskekkja
Hauslaus, úrelt, stefnulaus, skynsemissnauð byggðastefna
Þeir ekki þekkja það orð
Kvótakerfi óbreytt á þeirra borð
Er eins og hægfara sjálfsmorð
[Viðlag]
Hið íslenska bananalýðveldi
Valdaklíku sálina seldi
Siðlausir ríkisstjórnarmeðlimir
Sukkið borga landsins dætur og synir
Hið íslenska bananalýðveldi
Valdaklíku sálina seldi
Siðlausir ríkisstjórnarmeðlimir
Sukkið borga landsins dætur og synir
[Erindi 2 - Sesar A]
Álver í hvern fjörð? Lausn sem dugar skammt
Og hálendið ómetanlega fellur flatt
Réttara væri að fá háskóla eða opinberar stofnbyggingar, en allt fer fyrir lítið
Og engum finnst það skrýtið
Að stjórnin fær endalaus tækifæri til að klúðra málum
Og halda skattgreiðendum á nálum
Út af ríkisskuldahala og halla
Þótt gagnrýnisraddir kalla
Hendur íhalds og framsóknar strá salla
Vef blekkinga, í augu kjósenda
Enginn fjölmiðill vill heyra
Gagnrýni og afsagnarkröfur meira
Eftir þetta lag, vertu viss um það
Að ég fæ bréf frá forsætisráðherra
[Viðlag]
Hið íslenska bananalýðveldi
Valdaklíku sálina seldi
Siðlausir ríkisstjórnarmeðlimir
Sukkið borga landsins dætur og synir
[Erindi 3 - BlazRoca]
Hvort sem stýrist þessi þjóð af kanaskækjum eða hækjum
Gervihnöttum, símahlerun, kamerum og njósnatækjum
Veit hverjir þeir eru
Svo ég er stórhættulegur
CIA, FBI, RLS, Interpol og Echelon
Þeir vita allt um okkur en þeir vita ekkert um ENRON
Sorrý, ég hefði átt að senda allar vélarnar á Pentagon
Sólveig Péturs og Halldór Ásgríms
Eru bæði í liði með stærsta terrorista heims
Því Bandaríkin geta drepið hvern sem er í Írak
Á meðan mannslíf mælst vart á Nasdaq
Sameinaðar þjóðir refsa þjóð fyrir syndir einstaklings
Svo þessi andspyrnuhreyfing
Segir fokk að battla rappara út af misskilning
Ég battla kanamellu og zíoniskan gyðing
Og fjallkonu sem sýgur súran tittling
Á Kana kominn til að fara
Eða bíða bana ella fyrir að ríða Kana
Mella, snoðum Sólveigu P. og Halldór Á
Fokk að verja NATO-þjóð, ég stend með P, KK
Meðan ég öskra: „Ha, free Öcalan, no pasarán!“
Bla!
[Erindi 4 - Sesar A]
Ertu tilbúinn til að breyta
Samfélaginu og félagshyggjuleiða að leita
Til að hafa skoðun þarf ekki mikla þekkingu
Hættu að lifa í sjálfblekkingu
Segist ópólitískur en kýst íhaldskekkingu
Fyrst skrefið er að taka afstöðu
Og rjúfa hina þykku tómhyggjuþvögu
Falski trúbatrúðurinn úr eyjum
Er bara eitt sandkorn af þeim peyjum
Spillingar og vinagreiða pólitíkar sem hægriöfl og valdastétt hafa byggt
Og sér og sínum í leiðinni tryggt
Milljónir af opinberu fé
Í vasa og yfir það breitt með lélegt spé
Forsætisráðherra
Gaggóvest, gaggóþing þér að þakka herra
Tekur ekki málefnalegri gagnrýni
Ópersónulegt allir sjá nema hann einn sér sýnir
Strengjabrúður kolkrabba
Svo hvað er ég að kvabba
[Viðlag]
Hið íslenska bananalýðveldi
Valdaklíku sálina seldi
Siðlausir ríkisstjórnarmeðlimir
Sukkið borga landsins dætur og synir