Released on November 20, 2002

Thumbnail

[Viðlag - Sesar A & Bobbi vandræðagemsi]

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)


[Erindi 1 - Sesar A]

Allar hendur á þú veist það

Þorskhaus heyrir mig segja blablabla

Svo hann þarf að laga sinn heilabamba

Simsalabimm, dimmalimm

Komnir í farið pikkfastir fimm mínus tveir

Bobbi og Sesar A MC-ar þeir

Sem snúa öllu við á nóinu

Ráða 1000% flóinu

Ég meina flæðinu

Haltu þér að Sesar A dansæðinu

Margumtalaða? Ali Baba búgí wúgí

Borða staur, fýra gaur

Þótt ég eigi ekki aur

Bý til mör

Kallaðu mig sör

Sesar Afríkanus, það er sar

Lagsi ekki lengur á lausu eins og taxi

En skutla þér samt á þennan stað

Því þú vilt fá þetta far

Dömur mínar og herrar, gjörið svo vel að setja

[Viðlag - Sesar A & Bobbi vandræðagemsi]

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)


[Erindi 2 - Bobbi vandræðagemsi]

Heyrið hrynjandann byrja að gyrða orðaforðann

Mót´ann og skorð´ann í svo grísí hnulla að það má tæknilega borð ´ann

Og ef þið vitið hvað það er sem ég er að tala um

Vil ég biðja ykkur um að sveifla halanum

Í samræmi við þennan þétta takt frá Sesarnum

Og hver það er sem grípur um handfangið á nemanum

Drullar út úr sér setningum

Með mismunandi merkingum

En nóg um það hvað með það þó að tauni sé að tala

Þegar flestir skilja ekki rass í bala

Og þið semjið ekkert nema bölvað þvaður

Um að þið séuð betri en næsti maður

Þið spittið kannski af miklum krafti en ykkur skortir massa

Þið haldið kannski allir takti en ykkur skortir klassa

Þar að auki eigiði margt eftir ólært

Klífandi fjall sem er ófært

Getur verið heilsuspillandi

Líkt og það að vera fleylaus siglandi

Það ætti að taka mig og Sesza fasta

Fyrir það sem við erum að blasta

[Viðlag - Sesar A & Bobbi vandræðagemsi]

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)


[Erindi 3 - Sesar A]

Næst kemur takturinn inn í heilahvelin

Liðið að tryllast

Salurinn af tónum að fyllast

Það er ekki um að villast

Sesar A og Bobbi ráða draslinu

Og þú getur slappað af og sleppt öllu baslinu

Því við erum komnir til að herja á aula MC-um og titilinn að verja

Heilinn á liðinu fer að gerjast

Sesar A tekur þig í dvergakast, haltu fast

Þú lendir öfugsnúinn eins og Everlast

Þín tilvera, verður sagan sögð

Hér duga nákvæmlega engin undanbrögð

Eins og kvígur í stórri hjörð sem fara að ganga

Óhindrað að langa með Sesar A að hanga

Viltu á tónskala spranga eins og Árni Johnsen

Klóra endalaust í bakkann og segja

Vinagreiða, já, Bjössi Bjarna en

Búinn að vera eins og Duranduran í den

Velkominn inn, Þorskhaus minn

Ef þú heyrir bara blablabla

Þá þetta er of flókið fyrir þig til að fatta

Bón er bara einn eða ekki neinn

Hreinn og beinn

Gjörið svo vel að setja

[Viðlag - Sesar A & Bobbi vandræðagemsi]

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)

Allar hendur á loft (loft)

Þar til við segjum stopp (stopp)