Stráin sölna. Stofnar falla
Stormur dauðans næðir alla
Ljóselskandi, langanþrungið
Lífið fyllir öll þau skörð
Sækir fram í sigurvissu
Svo er strítt um alla jörð
Stríðsmenn falla. Hetjur hníga
Hjaðningum er stefnt til víga
Aldrei verður sætzt á sakir
Sækja og verjast herjum tveim
Sólskinsbörn og synir skuggans
Svo er strítt um allan heim
Tefld er drápskák tveggja herja
Tvíefld sókn og reynt að verja
Öllu tjaldað: erfðaheimsku
Afturhaldi, þræladyggð
Móti þroskans sókn til sigurs
Svo er strítt um alla byggð
Fallinn er hann Fjögramaki
Fyrr sem lyfti Grettistaki
Þó að hetja hnigi í valinn
Hefjum merkið, fram skal stefnt
Syrgjum meyjar, söfnum liði
Svo skal góðra drengja hefnt
Þó að hetja hnigi í valinn
Hefjum merkið, fram skal stefnt
Syrgjum meyjar, söfnum liði
Svo skal góðra drengja hefnt