Released on February 2008

Thumbnail

Ég hef komið til að sýna ykkur máttinn sem orðið hefur

Kominn til að vekja þjóðfélag sem sefur

Þegar ég rappa, snappa ég með þennan penna

Því textarnir mínir eru engin happaþrenna

Er ekkert að skafa utan af hlutunum

Við vitum allt um keðjurnar og bílinn þinn svo töltu niður á tjörn

Rappaðu fyrir lítil börn og láttu endur-skoða stílinn þinn

Ef þið fílið þetta ekki má fjandinn hirða ykkur

Vopnaður kaldhæðni og engri virðingu

Fyrir einu eða neinu fæ ég þig til að trúa

Öllu sem ég er að ljúga orðin mín smjúga inní hugann yfirbugann

Starta djupum hugsunum

Fá kærustuna þína til að vilja fara úr buxunum

Emsíar henda rímunum út um næsta glugga

Orðin mín særa, hugga fá hausanna á ykkur öllum til að fokking rugga

Þau veita innblástur

Fá jafnvel þá sem að fíla ekki rapp til að hugsa þessi Poetrix er skástur

Mömmur vilja sjá mig þegar það kveiknar á skjánum

Fá stelpur til að blikka og kikna í hnjánum

Og vilja frekar vera i rúminu mínu en tipla tánum um á rauða dreglinum

Fæ Ásgeir Kolbeins til að eyða fimm mínútum ekki fastur í spegilnum

Ókunnugir rétta mér höndina því ég læt þá missa öndina

Því orðin mín eru svo ósvífin að þau stela andartakinu

Með fleiri djúpar pælingar en þunglyndis-sjúklingur

Sígarettuför á handarbakinu

Fá fólk til aỡ líta öðruvísi á rappara hætta að kalla þá gettó

Laga hallann hjá elko

Því ég að spíta yfir steve sampling og m.at beata

Hefur máttinn til að skilja repeat takkana á græjunum

Ykkar alla eftir ónýta