Released on February 2008

Thumbnail

[Verse 1: Poetrix]

Þú yfirtókst huga minn með brosi sem enginn gleymir

Brotinn loforð um ást endurnýjuð

Í hvert skipti sem mig dreymir, þú veist ég þrá þig

Þegar þú leist á mig hætti tíminn að tifa

Ég týndist í augnablikkkunu sem lét lífið vera þess virði að lifa

Las allar bækur á rykföllnum borðum

Svo ég gæti skreytt ljóðin sem ég skrifa þér fögrum orðum

Hef búið í skýjaborgum drekkt sorgum mínum í alkahóli

Reyna finna jafningja þinn, vakna aldrei í sama bóli

Því þú ert það eina sem mig dreymir um

Án þín er sál mín týnd eins og kærleikur í heiminum

Og þegar við stígum vangadans og þú ert föst í fangi manns

Vona ég að tónlist, mun aldrei þagna

Hvíslaðu loforðum svo mér geti liði eins og hetju sem er fagnað

Hverja nótt vona ég að ég þurfi ekki að vakna til að sakna

Þess eina sem lýsir upp myrka tilveru mína eins og stjörnur í geiminum

Svo ég vill bara sofa, sofa hjá þér í drauma heiminum


[Chorus: ???]

Ég lofa þér að í draumum, í draumum, muntu sofa hjá

Ég lofa þér að í draumum, í draumum, muntu sofa hjá


[Verse 2: Poetrix]

Þeir segja mér að gleyma öllu sem mig er búið að dreyma og þrá

Því þetta eru draumar sem engir trúir á

Engin er búinn að sjá en ég á ekkkert eftir nema draumana

Hvað annað á ég að trúa á

Kannski þeir segji satt að heilsu minni fari hratt hrakkandi

En hvað vita þeir nema þeir séu sofandi, dreymandi

Að þeir séu vakandi

Ég vill vakna frá veruleikanum, lifa í draumum

Fremur en að reyka um heim sem hefur ekkert að bjóða

Svo ég tjái þér ást Mína í formi fagra ljóða

Þangað til þú segist elska mig líka

Sendir mér bros sem gerir fátæka ríka

Og lýsir upp svartholið í brjóstkassanum

Þá verð ég ekki týndur í ferðalagi lífsins með enga mynd í passanum

Þú hefur vafið mér í fingur þér of lengi

Loforð þín spila bara á tilfinningar mínar eins og strengi

Svo leiktu á mig lag um að ástin láti sjá sig

Þá fer hjarta mit að slá ????? fæti hafa takt

Til að dansa við af gleði fyrir augu mín að sjá þig

Leyfðu mér að þrá þig, svo þessi strengjabrúða geti huggað sig við drauminn um að fá þig