Plássið er laust

By Offbít

On Heimagerður veruleiki

Released on December 12, 2022

Thumbnail

Allt sem ég meina er

En ótalað

Og það sem meira er

Ég er að fara

Allt var meinað vel

En samt svo fatalt

Ég reyni að rústa mér

Og svo raða

Reyni að byggja eitthvað

Sem vill standa

Þó svo ástin sé

Hætt að anda

Ég sest í lestina

Vill fylgja með

Ennþá einmanna

En samt ég fer

Að leita drauma

Sem ég fann ekki hér

Nýji heimurinn á gömlum stað

Gamla raunveran grafin þar

Og ég á krossgátum

Að húkka far

Tala saman um dót sem er dautt

Og fara þaðan í endursýnt rautt

Ég var að fara svo að plássið er laust

Ég var að fara svo að plássið er laust

Ég sleppi takinu

Nú get ég andað á ný

Veruleikinn er

Að ég er alltaf

Að reyna finna mér

Eitthvað annað

Reyna að sleppa mér

Endurhanna

Ég finn að tíminn fer

Stundum frá

Og ég finn hann þegar

Mér liggur á

Og lítill draugaher

Fer á stjá

Ég hangi á bláþræði

Við að slitna

Allt þetta brjálæði

Við að kikna

Nýr heimur bara nokkurra vikna

Flokka minningar

Raða uppá nýtt

Senur sem ég þarf

Að muna síst

Og ég fel þær þar

Sem vatnið er dýpst

Tala saman um dót sem er dautt

Og fara þaðan í endursýnt rautt

Ég var að fara svo að plássið er laust

Ég var að fara svo að plássið er laust

Ég sleppi takinu

Nú get ég andað á ný x4