Þú ætlar kannski að stikla

Á stóru og fara greitt

Horfir ekki aftur

Enda hræðistu ekki neitt

En ef þér skrikar fótur

Er sárara að falla við

En ef þú hefðir hægt á þér

Og skoðað betur malbikið

Taktu stutt skref

Vertu ekki að flýta þér

Það liggur lítið á

Svo taktu stutt skref

Og sjáðu bara hvernig fer

Taktu stutt skref

Vertu ekki að flýta þér

Það liggur ekkert á

Svo taktu stutt skref

Og farðu ekki framúr þér

Eitt er að vita

Annað að hafa séð

Dregið að sér andann

Og slegið taktinn með

Hjáleiðin er tímafrek

En það er breitt bil

Á milli þess að lifa

Og þess að vera bara til