Sapien Apidem

By Illi Api

Thumbnail

No homo, bara sapiens

Nál, skeið, sprittkerti og smá apaglens

Höngum út í skó

Flýjum borgar-óm

Apaskott að éta skúrka

Og háma í sig flón

Þið endið dauðari en tupac

Sálarlausari en þitt rapp

Ég er falafel þú big mac

Þú veist við höngum eins og þvottur

Koddu Oddur við skulum snöffa þessar rottur

Þú þykist vera flottur, en lokaðu þverifuni

Þú átt ekkert í okkur

Allt of fríður er minn flokkur

Ekki abbast upp á apa því að þú munt tapa

En apinn vill ekki vesen apinn vill bara skapa

Og hanga uppi í tré, borða appelsínur og sötra smá te

Flýjum borgar-óm

Spísum flöðeskúm

Og kýlum lón

Burt frá borginni, fjarri sorginni

Apinn kveður drykkjuvísur

Meðan "K" þenur orgelið

Svona dokið við

Þetta er þotulið

Sem á uppgefnarskuldir

Mörg hús og risabíl

Tala apa-slang geri mitt apa-thang

Svo sendu bréfdúfu-baby

If you wanna hang

Viltu tékka þennann massa

Frekar massað fyrir kött

Sem ólst upp í sirkuskassa

Þó þeir hafi kallað það búr

Ef api er bak við rimla verður apinn súr

Og það er ekki kúl

Shoutout á dýragarðinn já það shit er sko krúl

En legðu frá þér lókinn

Hættu að upphefja sjálfann þig

Þó ég bara mjálmi

Þið bjálfar endið skjálfandi

Dýpri en hyldýpið

Myrkari en svarthol

Alltaf afmælisgallinn

Sérð mig aldrei í bol

Fautar fronta apann

Verða ristir á hol

Eða drekkt í munnskoli

Bor í hnéskelina

Þú drukknar í hori

Þitt shit er wack spit

Þú slefar bara slori

En apaspittið svo ferskt

Eins og sólskin á vorin

Yo ég kann að tala við fiska

Og get breytt öllum diskum

Í frísbí diska

Hey nálinn hún hoppaði

Þegar ég rústaði þér í battli

Og kúlið þitt brotnaði

Þú skeist á þig og brotnaðir

Og þú hættir að rappa

Mitt spit er himnaríki

Þitt slef er rófustappa

Ég mun brjóta alla hrappa

Sem að standa mér í vegi

Skítsama þótt þið meiðið mig

Skítsama þó ég deyji