Þjóðarskútan

By Illi Api

Released on January 10, 2018

Thumbnail

Sólskin út um gluggann

Sigli flæði eins og duggan

Breyðir út alla ugga

En þú fellur í skuggann

Ekki vagga bátinn babý,ekki rugga

Hræki alltaf eins

Sífellt alltaf sama tuggann

Illar vættir bjóða svikasættir inn um myrkragættir

Illa innrættir skúrkar, ættarveldisklíka

Og sífellt stækkar gjáinn milli fátækra og ríka

Spillingarvefurinn er ofinn inní þjóðina

Og hettuklæddar verur

Með lygaduft að hylja slóðina

Það sem þarf er eitt stykki bylting

Hana blóðuga

Apann sem einvald

Gerir þjóðina hróðuga

Enginn yrði svangur

Og engumm yrði kalt

Allir ættu skjól

Sígó, banana og malt

Enginn þyrfti að vinna of mikið

Og enginn hlypi í spiki

En allt sem ég sé núna eru svitinn og stritið

Fólk á engann stað að búa

Meðan ráðandi herrar svíkja og ljúga

Öryrkjum og ölduðum

Vill enginn hlúa að

Og allir útur snúa

En hvar eru allir þessir sem að hafa það svo gott

Ég á ekkert kaffi, ekkert brauð og bara óhreinan þvott

Þjóðarskútan sökk! hvað varð um þjóðarsálina?

Aumt er Ísland, enginn sómi

Þú ert útrunninn mysa

Ég er þeyttur rjómi

Fáðu þér vinnu

Þvó að þá snúast hjólinn

Farðu svo og kjóstu og keyptu dýra kjólinn

Höldum kapítalinu gangandi

Meðan allt еr fokked

Og svangi mangi hangandi

Gerið uppreisn vеttlingavaldar og gangfærir

Fokk allar kreppur til fjandans með góðærið

Þið fáu útvöldu vel snæðið og stórgræðið

Meðan öllum hinum blæðir

Um þetta illi apinn ræðir

Glötuð virðing, vegsemd

Heillum horfin

Hímir svikin

Þjóð í djúpum draumi

Illt er umtal

Eiturtungna

Nöðrum netið ofið

Aumt er Ísland

Eymdarbæli

Þung er sorg á sinni