Released on October 2, 2017

Thumbnail

[Hook: Herra Hnetusmjör]

Ég bið til Guðs þegar ég vakna að hann passi mig

Læt á mig gull og fæ mér svo fleiri skartgripi

Sólgleraugu sem kosta mikið á andlitið

Allir að bulla um mig þar til ég labba inn, hey

Mig fer að vanta peningahvelfingu

Komum fyrir löngu og ég sé enga lendingu

Geri þetta fyrir seðla og menningu

Já ég er hetjan úr hverfinu

Geri þetta fyrir seðla og menningu

Já ég er hetjan úr hverfinu


[Verse 1: Huginn]

Já við vissum vel að þetta myndi fara svona

Já við vissum vel að þeir myndu tala svona

Það er fátt sem ég heyri sem ég tengi við

Kóp Bois Entertainment ný greysðla frá nýjum tengilið

Segir voða mikið, hlusta ekki á það

Kemur alltaf til mín þú þarft að elta það

Hún spyr mig hvar hún hefur séð mig áður

Út um allt ég er þessi eini strákur

Fer ekki fet fyrir neinn

Fer ekki fet fyrir neinn nema mína

Vakandi klukkan er seint

Nóttin svo björt því Kóp Bois eru að skína

Það er ekki neitt sem þið segið sem fer í gegnum

Ég greiði, ég heyri ekkert, ég fljúgandi út í geymi

Ég gleymi mér oft en ég fatta það samt sem betur fer

Þeir læðast um mig en þeir eiga ekkert [?]

Það er alltof margt sem ég ætla, ætla ná á næstunni

Vinna, vinna, vinna, vinna á daginn og á nóttinni


[Hook: Herra Hnetusmjör]

Ég bið til Guðs þegar ég vakna að hann passi mig

Læt á mig gull og fæ mér svo fleiri skartgripi

Sólgleraugu sem kosta mikið á andlitið

Allir að bulla um mig þar til ég labba inn, hey

Mig fer að vanta peningahvelfingu

Komum fyrir löngu og ég sé enga lendingu

Geri þetta fyrir seðla og menningu

Já ég er hetjan úr hverfinu

Geri þetta fyrir seðla og menningu

Já ég er hetjan úr hverfinu


[Verse 2: Huginn]

Í byrjun var það bara ég

Núna er það Huginn frá KBE

Ég stækka innaní á hverjum degi

Vex og dafna ego hafnar stend við það sem ég segi

Haldiði að þið þekkið mig, ég efa það

Vitið hvað ég heiti, varla meira en það

Samt læturðu eins og besti vinur minn þegar ég sé þig

Hefur aldrei setið á stöðunum sem ég hef setið

Fæddur 96 þú mátt alveg reyna

Erfiðari hlutir en það er sem ég hef náð að gleyma

Ég sá það voða fljótt að menn halda ekki trausti

Elta það sem hentar þeim, það fyrsta sem að skaust inn

Ég er góður hér og verð trúr sjálfum mér að eilífu

Vinn að betri dögum, alla daga handa mér og mínum

Þetta mun alltaf snúast um okkur

Þangað til við höfum fengið nóg og við stoppum


[Hook: Herra Hnetusmjör]

Ég bið til Guðs þegar ég vakna að hann passi mig

Læt á mig gull og fæ mér svo fleiri skartgripi

Sólgleraugu sem kosta mikið á andlitið

Allir að bulla um mig þar til ég labba inn, hey

Mig fer að vanta peningahvelfingu

Komum fyrir löngu og ég sé enga lendingu

Geri þetta fyrir seðla og menningu

Já ég er hetjan úr hverfinu

Geri þetta fyrir seðla og menningu

Já ég er hetjan úr hverfinu