Released on October 31, 2017

7K Views

Thumbnail

[Vers 1: Matthías Tryggvi Haraldsson]

Árin renna frá þér eins og brauðmylsnum er hent í ruslatunnu

Þau safnast saman á haugum brostinna drauma

Þú lítur til baka og hugsar:

Afhverju seldi ég mig

Afhverju seldi ég mig

Ekki fyrir meira?


[Vers 2: Matthías Tryggvi Haraldsson]

Næturnar verða ekki mikið fleiri eftir þetta

Ævi þín er útbrunninn stubbur í hringiðandi öskubakka

Þú lítur til baka og hugsar:

Afhverju seldi ég mig

Afhverju seldi ég mig


[Vers 3: Matthías Tryggvi Haraldsson]

Öskunni er stráð yfir kistuna og um leið man enginn hver þú varst

Ekkert fyrirfinnst jafn ómerkilegt og ævin sem var við að ljúka

Þú stóðst ekki fastar á þínu en svo að enginn kærir sig um minningu þína

Við tekur hyldýpi svartnættis og eilíf eymd í botnlausri algleymsku


[Bridge: Klemens Nikulásson Hannigan]

Ég fel mig undir laki

Sem kuldinn hefur þakið

Nóttin starir þögul

Hún segir lygasögur

Tómið svífur að mér

Berleggjaður berst ég

Banasæng ég bý mér

Banasæng ég bý mér

[Outro: Matthías Tryggvi Haraldsson & Klemens Nikulásson Hannigan]

Árin runnu frá þér eins og brauðmylsnum var stráð í ruslatunnu

Banasæng ég bý mér

Þau söfnuðust saman á haugum brostinna drauma

Banasæng ég bý mér

Hversu oft var það sem þú leist til baka og hugsaðir:

Afhverju seldi ég mig

Afhverju seldi ég mig

Ekki fyrir meira?