Released on January 26, 2024

Thumbnail

Þegar ég sá þig

Fann ég tilganginn

Augnablikið frosið

Þú ert allur heimurinn

Ég finn frið í þínu fangi

Ég verð þar alla tíð

Nú ég skil, þú ert lífið, sem ég hef beðið eftir

Svo líða árin

Og þú fetar veginn þinn

Ég skal þerra tárin

Vera klettur til að styðjast við

Ég vona að sólin skíni á þig

Hvert skref á leiðinni

Þú vitir að það dimmir alltaf áður en það birtir til

Frá morgni dags til sólarlags

Ást mín endist ævilangt

Endist ævilangt

Endist ævilangt

Ég skal lofa

Að ganga með þér lífsins leið

Þar til dýrðin kallar mig að lokum heim

Ef þú hikar skaltu vita að ég verð hlið þér sama hvað

Legðu hönd þína í lófa minn og ég mun leiða þig af stað

Frá morgni dags til sólarlags

Ást mín endist ævilangt

Endist ævilangt

Endist ævilangt

Endist ævilangt

Endist ævilangt

Endist ævilangt

Endist ævilangt