Þú sagðir

By GDRN

On Frá mér til þín

Thumbnail

[Chorus]

Þú sagðir ú a ú-ú a

Ég hélt þú myndir fylgja mér til eilífðar

Ég sagði ú a ú-ú a

Ekki þó mér yrði borgað fyrir það

Þú sagðir ú a ú-ú a

Hvað varð eiginlega um framtíðina?

Ég sagði ú a ú-ú a

Ég vil helst ekki fara út í það


[Verse 1]

Ég man ennþá daginn þegar ég sá allt svo skýrt

Ég vonaði að þú myndir breytast fyrir mig

En þú vildir fara leiðir sem ég gat ekki fylgt

Breytti ekki neinu þótt ég gerði allt fyrir þig

Þú sýndir síðan aldrei þína réttu hlið

Fyrr en það var orðið of seint að snúa við

Svo málarðu upp sakleysið og kennir mér um

Lætur eins og þú vitir ekki hvað ég er að tala um


[Chorus]

Þú sagðir ú a ú-ú a

Ég hélt þú myndir fylgja mér til eilífðar

Ég sagði ú a ú-ú a

Ekki þó mér yrði borgað fyrir það

Þú sagðir ú a ú-ú a

Hvað varð eiginlega um framtíðina?

Ég sagði ú a ú-ú a

Ég vil helst ekki fara út í það


[Verse 2]

Ég veit að það þarf tvo til, en veistu samt hvað?

Mér finnst eins og þér hafi gengið ágætlega

Að rífa niður allt sem að gaf lífinu lit

Ég vildi ég hefði aldrei þurft að umgangast þig

Það er liðinn einhver tími síðan við töluðumst við

Þó ég segi sjálf frá þá gerir það еkkert til

Þú spilar þig sem fórnarlamb og ég hef lеyft þér það

Þangað til ég ákvað að semja þetta lag


[Chorus]

Ú a ú-ú a

Ég hélt þú myndir fylgja mér til eilífðar

Ég sagði ú a ú-ú a

Ekki þó mér yrði borgað fyrir það

Þú sagðir ú a ú-ú a

Hvað varð eiginlega um framtíðina?

Ég sagði ú a ú-ú a

Ég vil helst ekki fara út í það

Þú sagðir ú a ú-ú a

Ég hélt þú myndir fylgja mér til eilífðar

Ég sagði ú a ú-ú a

Ekki þó mér yrði borgað fyrir það

Þú sagðir ú a ú-ú a

Hvað varð eiginlega um framtíðina?

Ég sagði ú

Ég vil helst ekki fara út í það