Released on November 7, 2018

Thumbnail

[Chorus]

Þeir segja að helvíti sé löng röð sem gengur í hringi

Svo í rauninni er allt lífið bið eftir

Engu

Þau segja mér að ég sé komin langt og hafi tekist vel til í þessu en ef ég hugsa um það hef ég ekki unnið í

Neinu

Til dæmis, ég hringi alltaf í þig, bíð eftir þú svarir þó ég viti alveg hvað þú segir við mig

Sama hvað ég vil

Ekkert

Bíð eftir engu, set matinn í körfuna, mæti í vinnu og held öllu hreinu

Bíð ekki eftir neinu

Engu


[Verse 1]

Tek mér miða

Gjaldkeri fimmhundruð tuttugu og eitthvað

Ég fer

Og sest í sófann

Frítt kaffi, kleinur og hálsbrjóstsykrar

Á eftir að ganga frá greiðslu

Gæti verið pínu langt í það

Ég reyndi að borga þetta í fyrradag en kerfið var eitthvað bilað, allavega

Maður horfir á mig

Bendir á konu sem ég á að fara til

Smá eins og feitlagin ung Vigdís Hauksdóttir

Maskaraklessur með dökkbleikan varalit

Ertu ekki með appið?

Þetta er ekki fyrir gjaldkera

Mátt heyra í þjónusturáðgjafa

Nýr miði aftast í röðina


[Chorus]

Þeir segja að helvíti sé löng röð sem gengur í hringi

Svo í rauninni er allt lífið bið eftir

Engu

Þau spurja mig hvort ég lifi vel, hvort ég græði pening á þessu

En ef ég hugsum það er þetta ekki að skila mér

Neinu

Til dæmis, ég reyni oft að gera

Hluti fyrir aðra til að þykjast vera eitthvað en það er sama

Þau vilja eitthvað annað

Einhvern

Tek eftir engum, tek bílinn í skólann, tek sopa af bjórnum, einn dag í einu

Tek ekki eftir neinu

Engu


[Post-Chorus]

Engu


[Verse 2]

Þetta er aðeins lengra en mig minnti

Hann myndi koma sér fram fyrir mig ef hann þyrfti

Ég get víst spurt ef ég er vilt en það er niðurlægjandi

Að sýna öllum vopnin sín, ég bíð og verð svo í bandi

Ég keyri eitthvert lengra

Ég keyri eitthvert lengra og reyni kannski að finna eitthvað

Bensínstöð, peningageymar

Bíð eftir þeim sem að bíða eftir mér heima

Bíð eftir

Stöðugri vinnutíma, tími í það, einni línu

Bíð eftir

Því að gleyma - hver er í lífinu þínu

Bíð eftir

Einu, hrósi eða einhverju meiru

Bíð eftir fleiru

Eða ekkeftir neinu

Engu


[Outro]

Engu