Stalker

By BRIET

On 1000 orð

Released on May 1, 2024

Thumbnail

[Textar fyrir "Stalker"]

[Vísa 1: Birnir]

Rennandi um í bíl með engu þaki á

Við þurfum bæð'að stunda sjálfsást

Ég les ekki hugsanirnar þínar

Og þú leyfir mér að ganga of langt

Skýin inni hjá mér eru dökkgrá

Þau eru ekki hæf að gefa mér ráð

Vildi ég ætti fleiri klukkutíma með þér

Það að vera í friði er dýrara en ég hélt

Gæti vel verið útaf mér að hún vilji hefnd

Ég hef bara slæmar hugsanir en það venst

Og Guð veit það er heljarinnar ferð

[Fyrir-Viðlag: Birnir]

Það blikkar úr þakgluggunum á leifsgötunni og ég rúlla eina upp

Það er fyrsti í snjókomu og það var dimmt allan daginn í greinunum

Til öryggis er jeppinn fjórhjóladrifinn ef ég finn leiðina upp

Eitt sinn verða allir menn að deyja og sumarið endist of stutt

[Viðlag: Bríet]

Fall fyrir þér

Er ekki fall fyrir mér

Fallegt fyrir mér

Er ekki fallegt fyrir þér

Fall fyrir þér

Er ekki fall fyrir mér

Fallegt fyrir mér

Er ekki fallegt fyrir þér

[Vísa 2: Birnir]

Ég var alinn upp enn fæddist líka með eitthvað

Hef mig allan við að missa ekki gleðina

Þarf eitthvað annað en að flakka á milli meðala

Því ég finn það breyta mér í meðal mann

Enginn sem ég þurft'að þykjast vera í dag

Orðinn þreyttur á að þurfað verja allt

Ástríða, sársauki og finna drekana

Og fyrsta skiptið sem ég hugsaði um að drepa hana

Föllum saman eins og þúsund bita púsl

Hendur tímans halda á okkur og við snúumst

Eftir þetta allt erum við mjúk og

Það mun enginn elska mig eins og þú

Hljómar vel að brenna saman út

Það er langt síðan við urðum sjúk

Hlutirnir sem enginn veit nema ég

Og þú getur verið leiðin út

[Fyrir-Viðlag: Birnir, Bríet & Birnir]