Released on November 6, 2010

Thumbnail

[Verse 1 - BlazRoca]

Það er pabbahelgi, homie, en það er enginn úti að sippa

Ses, Blaz, Ísaksen og beatbox frá Kidda

Með eldfiman skít, sjáðu frændurna rippa

Og Redd Lights á tökkunum svo það getur ekki klikkað

Ég er ekki að segja að ég sé efst og þú sért neðst

En ég var fyrstur til að negla manifest-ið svona sterkt

Og breyta dansgólfinu í 11. sept

Svo virtu það

Og við getum spjallað

Eða gefðu skít í mig

Og ég míg á þig

Reppa frá Íslandi

En ekki hvíslandi

Alveg síðan í stóra hvelli

Síðan menn gerðu ekki merki á hellisveggi

Það er þér ekki í Haag eins og Milošević fyrir rétti

Búinn að banga Cee Lo áður en hann var Gnarls Barkley

Yеah boy, eins og Flava Flav, ég hætti aldrei

Þannig er það hеy

Svo upp með báðar hendur því ég er Cassius Clay


[Verse 2 - BlazRoca]

Við vorum fyrstir

Svo byrstið

Ykkur ef þið viljið

Ég meina, þegar þið hélduð að Limp Bizkit væri sjittið

Frænkur á lager, ég á nóg af slíku

Ég á gull og platínu

Fjármál í fínu, þótt ég sé ekki ríkur

Svo af hverju gef ég út skífu

Því það er það besta í lífi mínu

Rokkað illað sjitt alveg síðan í den

Ég er pabbi í þessum leik síðan way back when

Eins og Tribe er það once again

Og við kynnum með stolti MC Ísaksen


[Verse 3 - Ísaksen]

Ég vil bara reppa mitt

Og drekka skyrblandaðan drykk

Dingla hjá frænku og segja: „Skynjaðu þetta spitt“

Því ég er tíu ára og skítsama um rass og tits

En ég er þungavigt svo fokk þetta Latabæjarsjitt

Treð í mig ávöxtum, er duglegur í skóla

Þetta er vel séður hali því BlazRoca ól hann

Kiddi og Ísaksen, sjáðu okkur verða stóra

Meðan þið drekkið bjóra erum við úti að hjóla

Hvað er að frétta Sesar?

Hvað er að frétta Blazi?

Elska rappið ykkar en mig langar ekki á barinn

Enginn landasali

Vil enga Bandaríkjadali

Ertu stórlax? Pff, við étum þig grafinn

Því þótt ég sé krakki

Er ég King Kong-hali

Og drykkurinn í kjaftinum er sítrónusvali

Þetta fokkin' væl er svo mikill óþarfi

Því BlazRoc er pabbinn

Og Sesar er afinn

Svo þú veist það best sjálfur að ég er vel uppalinn


[Verse 4 - Sesar A]

Gef mér taktkjaft-takt til að rappa við

Því BlazRoc og Sesar A eru pabbarnir

Ha, viltu reyna mig?

Best að skeina þig

Þína munnræpuþverrifu

Sem enginn skilur

Þetta er pabbarapp

Þú veist, pabbasnakk

Þú veist, þeir sem lögðu grunninn

Áður en aðrir opnuðu munninn

Á ástkæra og ylhýra

Tungan mín dýra

Mynd dregur upp skýra

Komandi kynslóð býr að

Þú veist það, byrjar enn þá á S og endar á A

Þú veist það, þarf ekki að tvítaka það

Nema hvað


[Outro - Ísaksen]

Þegar Ísaksen og Kiddi verða fullorðnir

Ætlum við að vera heavy góðir við frænkurnar

Ekki reykja eða drekka

Nota smokka og vera duglegir í skólanum

Og einelti er fyrir pulsur

Sæll vinur